Heim

Um

Fréttir

Leita

Senda inn gagnasafn

Krækjur

Orðalistar

Senda LÍSU póst

Fréttir

Upplýsingar um 101 gagnasafn komnar í Landlýsingu

Í árslok 2003 voru í Landlýsingu lýsigögn fyrir 101 gagnasafn sem tengdist 25 stofnunum og sveitarfélögum.

Í samstarfssamningi LÍSU samtakanna og Landmælinga Íslands fyrir tímabilið 2001-2003, kom meðal annars fram hvert væri markmið verkefnisins, hlutverk fagráðsins og hvernig ætti að vinna að málefnum Landlýsingar.  Þá var fjallað um hlutverk LMÍ sem framkvæmdaaðila, og um hlutverk gagnaeigenda varðandi upplýsingar um gögn og hlutverk LÍSU sem vettvang notenda og þátttakenda.

Í lok tímabilsins er ljóst að ákvæði samningsins hafa gengið vel eftir og á þann hátt sem lagt var upp með. Fagráðið sem skipað var árið 2001 setti fram markmið um að ná fjölda þeirra gagnasafna sem lýst er í Landlýsingu úr rúmlega 40 í 100 á þeim þremur árum sem samningurinn gilti og gekk það eftir.

 


Mælikvarðar | Efnisflokkar
Öll gagnasöfn eftir titli | Öll gagnasöfn eftir stofnun | Allar stofnanir
Öll gagnasöfn eftir landsvæðamörkum | Öll gagnasöfn eftir staðsetningakerfi
Öll gagnasöfn eftir flokkun stofnunar
Um lýsigagnagrunninn | Fréttir | Senda inn gagnasafn | Leita | Krækjur | Orðalisti