Heim

Um

Fréttir

Leita

Senda inn gagnasafn

Krækjur

Orðalistar

Senda LÍSU póst

Fréttir

Landlýsing. Kynning á GI Norden ráðstefnu

Fyrsta formlega kynningin á Landlýsingu utan LÍSU samtakanna fer fram á ráðstefnunni GI Norden, á Hótel Sögu dagana 26.-28. október 2000. Gefinn hefur verið út litprentaður bæklingur til að kynna vefinn og gera grein fyrir þeim fjölbreytilegu möguleikum sem felast í notkun hans. Í sýningarbás Landmælinga Íslands á ráðstefnuni verður hægt að kynnast vefnum og ræða við starfsmenn um að koma upplýsingum um eigin gagnasöfn inn í lýsigagnagrunninn. Þar verður mögulegt að fá eyðublöð og ræða spurningar sem kunna að vakna varðandi útfyllingu þeirra. Vonast er til að jafnframt fáist hugmyndir sem nota megi til að þróa verkefnið áfram. Hugbúnaður Landlýsingar er eins og kunnugt er frá dönsku kortastofnuninni KMS (Kort og matrikelstyrelsen). Tveir starfsmenn þeirrar stofnunar sem vinna á sviði lýsigagna (metadata) munu taka þátt í GI Norden og annar þeirra flytja þar erindi. Í tengslum við samning um samstarf vegna hugbúnaðarins frá KMS verður í framhaldi af ráðstefnunni haldinn samráðsfundur hjá Landmælingum Íslands á Akranesi mánudaginn 30. október. Þann fund munu sitja, ásamt starfsmönnum KMS, fulltrúar í fagráði og allir þeir sem koma að vinnu við Landlýsingu. Stefnt er að því að halda fyrir árslok fund með fulltrúum allra þeirra sem nú eiga upplýsingar í Landlýsingu.

 


Mælikvarðar | Efnisflokkar
Öll gagnasöfn eftir titli | Öll gagnasöfn eftir stofnun | Allar stofnanir
Öll gagnasöfn eftir landsvæðamörkum | Öll gagnasöfn eftir staðsetningakerfi
Öll gagnasöfn eftir flokkun stofnunar
Um lýsigagnagrunninn | Fréttir | Senda inn gagnasafn | Leita | Krækjur | Orðalisti