Heim

Um

Fréttir

Leita

Senda inn gagnasafn

Krækjur

Orðalistar

Senda LÍSU póst

Vefslóðir og sambærileg þjónusta á netinu

Á netinu er mögulegt að tengjast mörgum aðilum sem veita þjónustu á svipuðu sviði og Landlýsing. Landlýsing byggist á notkun hugbúnaðar frá dönsku kortastofnuninni KMS og sett upp með leyfi þeirrar stofnunar samkvæmt sérstökum samningi. Hér á eftir fara upplýsingar um nokkra þjónustuaðila á sviði lýsigagna (metadata) ásamt tengingum (krækjum) við þá.

Infodatabase om Geodata. Geymir upplýsingar, lýsigögn, um stafræn gagnasöfn hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum í Danmörku. Hægt er að leita eftir nokkrum leiðum að gögnum, fá yfirlit um hvaða landsvæði gagnasöfnin sýna og sjá sýnishorn af gögnum. Fyrirmynd að íslenska lýsigagnasafninu á vefnum.

Infodatabase om Grønland. Grænlensk útgáfa af Infodatabase om Geodata. Lýsingar á Grænlenskum kortum og landupplýsingum, bæði á hefðbundnu og stafrænu formi. Grænlenski gagnabankinn byggir á samskonar gagnagrunnsuppsetningu og hugbúnaði og Infodatabase om Geodata.

GDDD (Geographical Data Description Directory) er lýsigagnasafn fyrir gagnasöfn kortastofnana sem eru aðilar að MEGRIN (Multipurpose European Ground Related Information Network). MEGRIN er samstarfsverkefni 20 evrópskra kortastofnana innan CERCO samtakanna. MEGRIN hefur meðal annars unnið að gerð stafrænns gagnasafns um stjórnsýslumörk í Evrópu sem nefnist SABE (Seamless Administrative Boundaries of Europe).

SNIG (National System for Geographical Information) Portúgalskt lýsigagnasafn um landupplýsingar. Lýsing gagnanna er á portúgölsku, en inngangur er einnig á ensku.

Idefix National Clearinghouse Hollenskt lýsigagnasafn um landupplýsingar. Lýsing gagnanna er eingöngu á hollensku.

NYS Spatial Data Clearinghouse for Geographic Data Lýsigagnasafn um gögn frá New York fylki. Tilgangurinn með lýsigagnasafninu er að gefa framleiðendum landupplýsinga möguleika á að lýsa afurðum sínum og að veita notendum landfræðilegra upplýsingakerfa aðgang að gögnunum.

Alexandria Digital Library (ADL)

CNIG et AFIGéO. Franskt lýsigagnasafn um landupplýsingar, sem unnið var í samvinnu CNIG og AFIGéO. Lýsing gagnanna er á frönsku, að undanteknum inngangi sem einnig er á ensku.

OCLC (Online Computer Library Center) Vefsíða um lýsigagnaþjónustu OCLC í Bandaríkjunum.

PASDA (The Pennsylvania Spatial Data Access system) Opinbert lýsigagnasafn um landupplýsingar í Pennsilvaníu fylki.

 


Mælikvarðar | Efnisflokkar
Öll gagnasöfn eftir titli | Öll gagnasöfn eftir stofnun | Allar stofnanir
Öll gagnasöfn eftir landsvæðamörkum | Öll gagnasöfn eftir staðsetningakerfi
Öll gagnasöfn eftir flokkun stofnunar
Um lýsigagnagrunninn | Fréttir | Senda inn gagnasafn | Leita | Krækjur | Orðalisti