Lýsigagnavefurinn er netásýnd fyrir
lýsigagnagrunninn Landlýsingu, þar sem nálgast má skrá yfir stafræn
kort og aðrar landfræðilegar upplýsingar um Ísland á netinu. Veffang Landlýsingar
er http://landlysing.lmi.is. Samstarfsaðilar að Landlýsingu eru LÍSA
Samtök um landupplýsingar á Íslandi fyrir alla og Landmælingar Íslands.
Verkefnið er stutt af umhverfisráðuneytinu.
Í Landlýsingu má finna stutta, samræmda lýsingu samkvæmt
Evrópustaðli á hverju korti og/eða gagnasafni ásamt upplýsingum um, hvert megi snúa
sér til að fá nánari upplýsingar. Lýsingin er komin beint frá viðkomandi
fyrirtæki eða stofnun, sem framleiðir tiltekin gögn og ber ábyrgð á þeim.
Aðgangur að Landlýsingu gegnum vefinn er ókeypis.
Tilgangurinn með Landlýsingu
Mikil aukning er á framleiðslu stafrænna korta, og önnur vinnsla
landfræðilegra upplýsinga fer sífellt vaxandi. Sífellt verður erfiðara að fá
yfirsýn um, hvað til er af gögnum hverju sinni.
Mjög víða í samfélaginu er farið að nota landfræðilega
upplýsingavinnslu sem verkfæri við kannanir, rannsóknir, skipulag, ákvarðanir og
afgreiðslu mála. Þá rísa óhjákvæmilega spurningar um, hvernig hægt sé að
nálgast kort og aðrar stafrænar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru í vinnu af þessu
tagi.
Markmiðið með Landlýsingu er að hjálpa notendum og
framleiðendum landfræðilegra gagna að komast í samband hver við annan.
Landlýsing gefur ekki beinan aðgang að viðkomandi gagnasöfnum,
heldur lýsir innihaldi þeirra og eiginleikum samkvæmt drögum að Evrópustaðli (CEN).
Um er að ræða lýsigögn (Metadata), þ.e.a.s. gögn um gögnin sem fyrir hendi eru,
ásamt skrá um eigendur þeirra.
Hverjir reka Landlýsingu ?
Samstarf er um uppsetningu og rekstur Landlýsingar milli LÍSU
Samtaka um landupplýsingar á Íslandi fyrir alla og Landmælinga Íslands
(LMÍ). Hugbúnaðurinn að baki Landlýsingu er fenginn frá dönsku kortastofnuninni KMS
fyrir milligöngu LMÍ, og var hann þýddur og settur upp með styrk frá umhverfisráðuneytinu
Hvar er Landlýsing ?
Landlýsing er á vefnum undir krækjunni
http://www.lmi.is/landlysing, og er aðgangur að henni ókeypis. Fyrir notandann þýðir
þetta, að hann fær alltaf nýjustu upplýsingar, þar sem Landlýsing er uppfærð
reglulega eftir því sem tilefni gefst til.
Hverjir leggja til gögn ?
Gögn frá nokkrum opinberum stofnunum liggja þegar fyrir og eru
aðgengileg á netinu. Markmiðið er, að öll fyrirtæki og stofnanir, sem framleiða,
eiga eða bera ábyrgð á stafrænum kortum og öðrum landfræðilegum gagnasöfnum,
leggi til upplýsingar í Landlýsingu. Það er ókeypis fyrir viðkomandi aðila að
birta upplýsingar um gögn sín á vef Landlýsingar. Á móti kemur, að hver þeirra um
sig ber ábyrgð á því sjálfur, að upplýsingum frá þeim sé haldið við og þær
endurnýjaðar eins og efni standa til.