| |
Verkefni:
|
Veðurstofan annast veðurþjónustu fyrir Ísland í lofti, láði og legi, auk þess að gefa út viðvaranir vegna snjóflóða, hafíss, jarðskjálfta, sjávarflóða og annarrar náttúruvár sem tengist verkefnasviði stofnunarinnar. Á Veðurstofunni fer fram gagnaöflun og úrvinnsla og umsjón með veðurathuganastöðvum, auk þess sem rannsóknir og upplýsingavinnsla eru stundaðar. Veðurstofan hefur mikil samskipti og samvinnu við ýmsar aðrar stofnaðir bæði innlendar og erlendar.
|